Lög SFSV

Lög SFSV
Samþykkt 25.04.2007

1. gr. Félagið heitir "Starfsmannafélag Sementsverksmiðjunnar", skammstafað SFSV.

2. gr. Félagsmenn geta allir verið sem starfa hjá Sementsverksmiðjunni hf.
Starfsmenn, sem hafa lokið störfum vegna aldurs, skulu teljast fullgildir félagsmenn, án gjaldtöku, skv. sérstökum reglum um starfslok fullgildra félaga. Sjá meðfylgjandi fylgiskjal um réttindi eftir starflok.

3. gr. Tilgangur félagsins er að efla og auka félagslíf hjá starfsmönnum verksmiðjunnar og vinna að ýmsum málum er félagsmenn varðar, menningarmálum og fleiru.
Rétt til þátttöku í starfi félagsins eiga auk félagsmanna:
a) Makar og börn félagsmanna sem hafa sama lögheimili.
b) Barnabörn félagsmanna yngri en 16 ára.
c) Stjórn Starfsmannafélagsins getur í sérstökum tilvikum ákveðið undantekningar í liðum a og b.

4. gr. Nýir félagar öðlast atkvæðisrétt og kjörgengi strax og þeir hafa greitt félagsgjöld.

5. gr. Félagsgjald skal ákveðið á hverjum aðalfundi fyrir næstkomandi starfsár. Heimilt er að innheimta félagsgjöld af launum starfsmanna.

6. gr. Reikningsár félagsins er frá 15. feb. ár hvert til 14. feb. næsta árs. Aðalfund skal halda innan 6 vikna að reikningsári liðnu og skal boðað til hans með a.m.k. 6 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.

7. gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í félaginu. Gerðum hans verður ekki breytt nema á aðalfundi. Á aðalfundi skal stjórn leggja fram skriflega skýrslu um gerðir félagsins á liðnu starfsári. Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lagðir fram til umræðu og samþykkis leitað á þeim. Stjórnarmenn skulu kosnir til eins árs í senn. Ef fram kemur áhugi á ákveðinni starfsemi, sem fellur að/undir starfsemi félagsins og næg þátttaka næst, er mönnum heimilt að stofna um það sér nefnd og sækja um fjárveitingar til starfsins til stjórnar félagsins.

8. gr. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
a) Ársskýrsla stjórnar.
b) Reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
c) Lagabreytingar.
d) Stjórnakjör.
e) Kosning endurskoðanda.
f) Kjör nefnda.
g) Önnur mál.

9. gr. Stjórn félagsins skipa 3 menn og skipta þeir með sér verkum. Auk þess skal kjörinn 1 varamaður. Val fer þannig fram að skrifa skal nöfn 3 frambjóðenda á blað og síðan nafn þess fjórða, sem þá er varamaður kjósanda. Að lokinni talningu þá skoðast þeir 3, sem flest atkvæði hafa hlotið, aðalmenn og sá sem í fjórða sæti lenti, er þá varamaður í stjórn. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum í kosningu. Láti einhver stjórnarmeðlimur af störfum, skal varamaður taka sæti hans í stjórn.

10. gr. Endurskoðaðir reikningar félagsins og tillögur um lagabreytingar skulu hengdar upp á auglýsingatöflum fyrirtækisins síðustu 3 dagana fyrir aðalfund. Öllum tillögum að lagabreytingum verður að skila til stjórnar minnst viku fyrir auglýstann aðalfund þannig að ná megi að gera tillögurnar opinberar með áðurnefndum hætti.

11. gr. Stjórninni er skylt að boða til félagsfundar ef a.m.k. 10 félagsmenn óska þess bréflega og tilgreina ástæður.

12. gr. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum allra mála, þar sem ekki er öðruvísi ákveðið í lögum.

13. gr. Lögum þessum verður aðeins breytt á löglegum aðalfundi, og þarf til þess 2/3 hluta greiddra atkvæða.

14. gr. Lög og lagabreytingar taka gildi að aðalfundi loknum hverju sinni.

15. gr. Komi til fjöldauppsagna hjá Sementsverksmiðjunni hf (10 starfsmenn eða fleiri) er stjórn Starfsmannafélagsins heimilt að undangenginni samþykkt félagsfundar, allt að 6 mánuðum eftir að uppsagnir áttu sér stað, að leysa starfsmannafélagið upp, borga upp skuldir þess og ráðstafa eignum umfram skuldir til líknarmála á Akranesi.


Viðauki 1, félagsréttindi eftir starfslok vegna aldurs


1. Þeir sem láta af störfum sökum aldurs haldi fullum réttindum í SFSV með þeim undantekningum sem hér fara á eftir.
Starfsmenn sem láta af störfum sökum aldurs hafa:
a. ekki rétt til að sitja í stjórn félagsins.
b. ekki atkvæðisrétt á fundum.



Vefstjóri (webmaster): Guðmundur Bjarki Halldórsson - http://www.bjarkih.org
Netfang (e-mail): bjarkih@simnet.is